Skeljungur hf.: Skeljungur undirritar kaupsamning um allt hlutafé í Port I ehf., eignarhaldsfélag Dælunnar ehf. og Löðurs ehf.


Í dag 27. nóvember 2020, var skrifað undir kaupsamning vegna kaupa Skeljungs hf. á öllu hlutafé í Port I ehf. sem er eigandi Dælunnar ehf. og Löðurs ehf. Með kaupunum eignast Skeljungur því Dæluna og Löður.

Kaupin eru háð ýmsum forsendum og fyrirvörum, m.a. um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Dælan rekur fimm eldsneytisstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Löður rekur fimmtán bílaþvottastöðvar, þar af þrettán á höfuðborgarsvæðinu, eina á Akureyri og eina í Reykjanesbæ. Fasteignir og lóðir eru hluti af kaupunum.

Kaupverðið sem Skeljungur greiðir nemur á bilinu 910 - 1.150 m.kr. en kaupverð er háð forsendum í rekstri næstu ára auk ýmissa annarra skilyrða í kaupsamningi. Kaupverð verður þannig greitt að við afhendingu verða greiddar 282,5 m.kr. og yfirteknar nettó vaxtaberandi skuldir um 627,5 m.kr. Eftirstöðvar allt að 240 m.kr. eru háðar forsendum í rekstri og öðrum skilyrðum.

Gert er ráð fyrir að rekstur Dælunnar og Löðurs muni hafa um 140-180 m.kr. jákvæð EBITDA áhrif á afkomu Skeljungs hf. á ársgrundvelli.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs:

„Við teljum að rekstur Dælunnar og Löðurs falli vel að rekstri Skeljungs og sjáum mörg tækifæri með kaupunum til að útvíkka rekstur Skeljungs. Stöðvar Dælunnar eru vel staðsettar á höfuðborgarsvæðinu og sjáum við ýmis tækifæri tengd þeim. Markmið okkar er að eldsneytisala Dælunnar verði rekin undir merkjum Orkunnar.

Þá er það mat okkar að rekstur umhverfisvænna þvottastöðva sé framtíðin en Skeljungur vinnur að því að loka þvottaplönum sínum m.a. vegna umhverfisjónarmiða. Við höfum áhuga á að opna fleiri þvottastöðvar Löðurs á lóðum Skeljungs sem væri liður í að styrkja staðsetningar okkar og auka þjónustu á stöðvunum.“

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is.

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/