Sýn hf.: Breytingar á framkvæmdastjórn


Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með nk. áramótum. Að þeim tíma loknum mun Kjartan hverfa til annarra verkefna.

Eru honum færðar þakkir fyrir mikilvægt framlag til uppbyggingar og stjórnunar tæknireksturs félagsins og óskað velfarnaðar í framtíðar verkefnum.