Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Birting viðauka við grunnlýsingu

Reitir fasteignafélag hf., kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, hefur birt viðauka við grunnlýsingu dagsetta 14. febrúar 2020 sem birt var í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Viðaukinn er dagsettur 8. desember 2020 og er hann gerður í tengslum við hækkun á útgáfuramma félagsins úr 70 milljörðum króna í 100 milljarða króna. Viðaukinn er staðfestur af Fjármálaeftirlitinu og skoðast sem hluti af grunnlýsingunni.

Fossar markaðir hf. hafði umsjón með því ferli að fá viðaukann við grunnlýsinguna staðfestan hjá Fjármálaeftirlitinu. Viðaukinn er hér meðfylgjandi og verður einnig birtur á vefsíðu útgefanda, www.reitir.is/skuldabref. Grunnlýsinguna og viðaukann má nálgast á vefsíðunni á gildistíma grunnlýsingarinnar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.

Viðhengi