Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 14. desember sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 9.699.995 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 2.141.002.497 að nafnvirði.

Óskað verður eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.