VÍS: Jákvæð afkomutilkynning


Samkvæmt drögum að uppgjöri nóvembermánaðar 2020 er vænt afkoma félagsins fyrir árið hagstæðari en afkomuspá gerði ráð fyrir.  

Nú áætlar félagið að hagnaður ársins 2020 fyrir skatta verði um 1.150 milljónir króna, en afkomuspá félagsins, sem birt var þann 22. október sl., gerði ráð fyrir hagnaði upp á 390 milljónir króna fyrir skatta.  

Ástæðan fyrir betri afkomu er hærri ávöxtun fjáreigna á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Hafa ber í huga að sveiflur geta verið á fjármálamörkuðum sem geta haft áhrif á vænta afkomu, þrátt fyrir að stutt sé eftir af árinu.  

Félagið tilkynnir ef frávik frá væntum hagnaði ársins er meira en 300 milljónir króna. 

Afkomuspá næsta árs verður birt þann 29. janúar 2021 og uppgjör ársins 2020 þann 25. febrúar næstkomandi. 

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu erlat@vis.is