Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 51. viku 2020 keyptu Hagar hf. 1.850.000 eigin hluti fyrir kr. 110.520.000 eins og hér segir:

Dags.TímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
15.12.202012:13250.00060,0015.000.00014.179.550
16.12.202009:33500.00060,0030.000.00014.679.550
16.12.202009:36300.00060,0018.000.00014.979.550
17.12.202009:51500.00059,4029.700.00015.479.550
17.12.202010:36300.00059,4017.820.00015.779.550
Samtals 1.850.000 110.520.00015.779.550

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 1. desember 2020, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 30. nóvember 2020.

Hagar hafa keypt samtals 6.550.000 hluti í félaginu sem samsvarar 6,02% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 382.360.000 sem samsvarar 76,47% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,34% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.180.624.568.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 108.832.906 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2021, eða fram að aðalfundi félagsins 2021, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.