Hagar hf. – upplýsingar um birtingu uppgjörs 3. ársfjórðungs 2020/21


Hagar hf. birta uppgjör 3. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. september 2020 til 30. nóvember 2020, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 14. janúar nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þann 15. janúar kl. 08:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://livestream.com/accounts/11153656/events/9471233/player þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is  og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.