VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar


Tilnefningarnefnd VÍS auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar VÍS vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður föstudaginn 19. mars 2021.

Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til mánudagsins 8. febrúar 2021. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast hér og á vefsvæði tilnefningarnefndar á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/tilnefningarnefnd/. Útfylltum eyðublöðum skal skila á netfangið: tilnefningarnefnd@vis.is.

Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar.

Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu samsetningu stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði.