Reginn hf. mun birta samþykkt ársuppgjör 2020, eftir lokun markaða miðvikudaginn 10. febrúar 2021.
Af því tilefni býður Reginn hf. til rafræns kynningarfundar fimmtudaginn 11. febrúar nk. kl. 8:30.
Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið. Hægt er að senda fyrirspurnir á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og meðan á kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni. Einnig verður farið yfir ársskýrslu félagsins, áherslur í rekstri og rekstrarspá fyrir árið 2021.
Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/9511921/player
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262