Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 4. mars 2021 í sölum 2-3 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík.
Vakin er athygli á því að tilhögun fundarhalda kann að taka breytingum með vísan til þeirra sóttvarnarreglna sem í gildi verða á fundardegi, svo sem með því að halda fundinn rafrænt, að gættum öllum reglum hlutafélagalaga um hluthafafundi. Verða breytingar þar að lútandi tilkynntar í Kauphöll eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir fundinn.
Hluthafar eru hvattir til að forskrá sig á aðalfund félagsins m.t.t. sóttvarnarreglna með því að senda nafn og kt. og eftir atvikum útfyllt umboðseyðublað á fjarfestar@skeljungur.is.
Hjálagt er dagskrá aðalfundar, fundarboð, tillögur til fundarins og skýrsla tilnefningarnefndar.
Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: https://www.skeljungur.is/hluthafafundur-2021
Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is.
www.skeljungur.is
https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/
Viðhengi
- Dagskrá aðalfundar Skeljungs 2021
- Fundarboð til aðalfundar Skeljungs 2021
- Skýrsla tilnefningarnefndar 2021
- Tillögur til aðalfundar Skeljungs 2021