Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Rafrænn kynningarfundur vegna uppgjörs ársins 2020

Reitir birta uppgjör ársins 2020 í lok dags mánudaginn 15. febrúar. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn kl. 8:30, þriðjudaginn 16. febrúar. Fundurinn verður rafrænn en þar munu Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið. Hægt verður að bera upp spurningar á fundinum með skriflegum hætti.

Skráning er nauðsynleg fyrir þátttöku á fundinum og er hægt að skrá sig á hlekknum hér að neðan. Eftir skráningu fá þátttakendur staðfestingarpóst með nánari upplýsingum.

https://us02web.zoom.us/webinar/register/5716052657619/WN_urH6ukXmRQSdaNBNeGDuHw