Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 6. viku 2020 keyptu Hagar hf. 1.500.000 eigin hluti fyrir kr. 89.325.000 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
10.02.2021 10:20 500.000 59,55 29.775.000 24.273.750
11.02.2021 13:55 500.000 59,60 29.800.000 24.773.750
12.02.2021 09:41 500.000 59,50 29.750.000 25.273.750
Samtals 1.500.000 89.325.000 25.273.750

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 19. janúar 2021, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 18. janúar 2021.

Hagar hafa keypt samtals 7.500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 7,48% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 434.725.000 sem samsvarar 86,95% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 2,14% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.180.624.568.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 100.288.706 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2021, eða fram að aðalfundi félagsins 2021, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.