Rafrænn aðalfundur Marel 2021


Rafrænn aðalfundur Marel hf. verður haldinn miðvikudaginn 17. mars nk., kl. 16:00.

Drög að dagskrá:

  1. Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
  3. Skýrsla forstjóra
  4. Ársreikningar félagsins fyrir starfsárið 2020 lagðir fram til staðfestingar
  5. Ákvörðun hvernig skuli fara með hagnað fyrir árið 2020
  6. Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu félagsins
  7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
  8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna árið 2021
  9. Ákvörðun um greiðslu til endurskoðanda fyrir liðið starfsár
  10. Tillaga um breytingu á grein 15.2. í samþykktum félagsins:

Greinin heimilar stjórn félagsins að hækka hlutafé um allt að 100 milljónir króna að nafnvirði, sem m.a. má nota í tengslum við fyrirtækjakaup. Samkvæmt breytingatillögunni er heimildin lækkuð niður í 75 milljónir króna að nafnvirði, sem nemur 9,7% af útgefnu hlutafé, og heimilað er að selja nýtt hlutafé í útboði í umsjón fjármálafyrirtækis. Gildistími heimildarinnar er styttur úr 5 árum í 18 mánuði. Breytingatillagan er í samræmi við evrópska markaðsframkvæmd.

  1. Kosning stjórnar félagsins
  2. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis
  3. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf
  4. Önnur mál löglega upp borin

Fundarstörf munu fara fram á ensku.

Aðalfundurinn verður aðeins haldinn með rafrænum hætti. Allir hluthafar þurfa að skrá sig á fundinn og eru hluthafar hvattir til að skrá sig tímanlega. Lokað verður fyrir skráningu klukkan 12 á hádegi á fundardegi.

Skráning á fundinn hefst klukkan 12 á hádegi fimmtudaginn 18. febrúar og lýkur klukkan 12 á hádegi á fundardag. Sérstaklega er bent á að hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni í Amsterdam sem óska eftir því að mæta og kjósa á aðalfundinum þurfa að tryggja að vörsluaðili hlutabréfanna hafi skráð mætingu tímanlega á fundinn í vefgátt ABN AMRO. Þetta gildir um alla hluthafa, innlenda og erlenda, sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni, einnig þá sem eiga líka hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi.

Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi skrá sig á fundinn í Lumi AGM vefgáttinni á https://smartagm.com. Atkvæðagreiðsla á aðalfundinum mun fara fram á rafrænan hátt, með Lumi AGM snjallforritinu eða Lumi AGM veflausninni.

Stjórn Marel hefur ákveðið að heimila hluthöfum að kjósa með rafrænum hætti fyrir aðalfundinn. Rafræn kosning vegna hlutabréfa sem skráð eru á Nasdaq á Íslandi fer fram í vefgátt Lumi AGM á https://smartagm.com. Kosningin hefst klukkan 12 á hádegi föstudaginn 12. mars nk. og lýkur á hádegi á fundardag 17. mars nk., og geta hluthafar breytt atkvæði sínu fram að þeim tíma.

Rafræn kosning vegna hlutabréfa sem skráð eru í Euronext kauphöllinni í Amsterdam fer fram í gegnum vefgátt ABN AMRO. Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni í Amsterdam þurfa að láta vörsluaðila hlutabréfa sinna vita hvernig þeir vilja kjósa og vörsluaðilar skila atkvæðunum í gegnum vefgátt ABN AMRO. Rafræn kosning vegna hlutabréfa skráðra í Euronext kauphöllinni í Amsterdam hefst á hádegi fimmtudaginn 18. febrúar og lýkur á hádegi á fundardegi.

Þau sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti 14 sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 3. mars n.k.

Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir fundinn verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 7. mars n.k., á netfangið agm@marel.com. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn.

Á aðalfundarvef félagsins, marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðal­fundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2020, hagnýtar upplýsingar fyrir hluthafa, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 17. febrúar 2021, reglur um rafræna kosningu auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.

Dagskrá fundarins og endanlegar tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum 14 dögum fyrir fundinn, miðvikudaginn 3. mars n.k., á framangreindum aðalfundarvef félagsins.

Stjórn Marel hf.

 

Viðhengi



Attachments

Marel AGM 2021 - Tillögur stjórnar