Reginn hf.: Framboð til stjórnar og endanleg dagskrá og tillögur á aðalfundi 10. mars 2021


 

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn miðvikudaginn 10. mars 2021 kl. 16:00 í Hvammi fundarsal á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar Regins hf. rann út þann 3. mars sl.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

 

Í framboði til stjórnar eru:

Albert Þór Jónsson

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Már Wolfgang Mixa

Tómas Kristjánsson

 

Mat stjórnar er að öll framboð séu gild sbr. 63.gr.a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna í viðhengi.

Engar breytingar hafa orðið á dagskrá og tillögum sem birtar voru 16. febrúar sl. Önnur fundargögn tengd aðalfundi, umboðsform, skýrsla tilnefningarnefndar o.fl. má nálgast á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.

 

Kópavogur, 4. mars 2021.

Stjórn Regins hf.  

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Frambjóðendur til stjórnar 2021