Hluthafafundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn þriðjudaginn 30. mars 2021 kl. 16:00, á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
- Tillaga stjórnar um samruna Kviku banka hf., TM hf. og Lykils fjármögnunar hf.
- Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins vegna samrunans, þ.e. um hækkun hlutafjár.
- Umræður og önnur mál löglega borin fram.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningar félagsins eru eingöngu aðgengilegir á ensku. Fundargögn eru aðgengileg á vefslóðinni https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/ og skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Um frekari upplýsingar vísast til meðfylgjandi fundarboðs.
Viðhengi