Lykill fjármögnun hf. hefur lokið sölu á nýjum 6 mánaða víxlaflokki sem ber auðkennið LYKILL210915.
Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.880 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.533 m.kr. á 1,70% flötum vöxtum.
Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. mars 2021. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útgáfu og sölu víxlanna.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 444 6910