Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 8. mars sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæð IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 4.000.000 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 2.186.717.495 að nafnvirði.

Óskað hefur verið eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.