Eimskip: Dagskrá og tillögur aðalfundar 2021


Meðfylgjandi er endanleg dagskrá og tillögur stjórnar til aðalfundar 2021, ásamt skýrslu Tilnefningarnefndar félagsins.

Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021 í fundarsalnum Gullteig á Grand hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

Athygli hluthafa er vakin á því að tilhögun fundarhalda verður í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur á aðalfundardegi og ákvæði hlutafélagalaga um hluthafafundi. Ef breyta þarf tilhögun fundarhalda verður tilkynnt um það í fréttakerfi Nasdaq Iceland eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund. Nánari upplýsingar um tilhögun fundarins verða birtar í næstu viku.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins, www.eimskip.com/investors

Viðhengi



Attachments

EIM_Aðalfundur 2021_Lokatillögur Eimskip - Nomination Committee - Report

Recommended Reading