Síminn hf. – Niðurstöður aðalfundar 11. mars 2021


Meðfylgjandi eru niðurstöður frá aðalfundi Símans hf. sem haldinn var fyrr í dag.

Kosið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er Jón Sigurðsson formaður stjórnar og Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar.

Stjórnin er þannig skipuð:

• Jón Sigurðsson, formaður stjórnar
• Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður stjórnar
• Arnar Þór Másson
• Bjarni Þorvarðarson
• Björk Viðarsdóttir

Sjálfkjörið var í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta starfsár en nefndina skipa:

• Jensína Kristín Böðvarsdóttir
• Steinunn Kristín Þórðardóttir
• Sverrir Briem

Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð.

Ársskýrsla Símans hf. fyrir árið 2020 hefur verið gefin út. Skýrsluna má nálgast á heimasíðu félagsins á vefslóðinni: https://www.siminn.is/arsskyrslur/arsskyrsla-2020

Viðhengi



Attachments

Fundargerð aðalfundar Símans 2021