Kvika banki hf.: Kvika gefur út skuldabréf til tveggja ára í enskum pundum


Kvika hefur gefið út í dag skuldabréf í enskum pundum að fjárhæð GBP 12.000.000 í nýjum skuldabréfaflokki bankans KVB 21 01. Skuldabréfin eru til tveggja ára og bera fljótandi LIBOR vexti til þriggja mánaða með 2,50 % vaxtaálagi. Heildar útgáfuheimild í flokkinum KVB 21 01 er GBP 17.000.000

Skuldabréfin verða skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í næstu viku.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar í síma 540-3200.

Viðhengi



Attachments

20210316 KVB Víxlar mars