Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 30. mars sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að ákveðið hafi verið á hluthafafundi félagsins að hækka hlutafé félagsins að nafnverði um kr. 2.509.934.076 sem greiða skyldi til hluthafa TM hf. („TM“) sem endurgjald fyrir hluti þeirra í TM vegna samruna félaganna tveggja, auk Lykils fjármögnunar hf.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.696.651.571 að nafnvirði.

Óskað hefur verið eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.