Vísað er til fréttatilkynningar frá 25. mars sl. um niðurstöður aðalfundar Eimskipafélags Íslands hf. hvar samþykktar voru tvær tillögur stjórnar félagsins varðandi lækkun hlutafjár, um samtals kr. 11.800.000 að nafnverði þannig að hlutafé verði kr. 175.200.000 að nafnverði eftir lækkunina. Hlutafé verður annars vegar lækkað með lækkun eigin hluta og hins vegar með lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa.
Fyrirtækjaskrá Skattsins hefur nú samþykkt að veita félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu vegna þessara lækkana og hafa lögboðnar forsendur fyrir lækkun hlutafjár nú verið uppfylltar, sbr. sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Lækkun eigin hluta
Eigin hlutir félagsins verða lækkaðir um kr. 6.100.000, úr kr. 187.000.000 í kr. 180.900.000 að nafnverði. Fyrir lækkun voru eigin hlutir 3,28% heildarhlutafjár, en eftir lækkunina eru eigin hlutir 0,00018% heildarhlutafjár. Beiðni um lækkun hefur verið send Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd miðvikudaginn 7. apríl 2021. Einnig er vísað til markaðstilkynningar sem Nasdaq Iceland mun gefa út um lækkunina.
Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa
Þessi lækkun á hlutafé félagsins nemur kr. 5.700.000 að nafnverði með greiðslu sem nemur kr. 1.675.800.000. Fjárhæðin verður greidd út til hluthafa félagsins þann 30. apríl 2021, hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra m.v. skráningu í hlutaskrá í lok dags. 29. apríl 2021. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð mun verða færð til lækkunar á yfirverðsreikningi, eða kr. 1.670.100.000
Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár verður því þriðjudagurinn 27. apríl 2021. Framkvæmd þessara hlutafjárlækkunar verður með eftirfarandi hætti:
- X-dagur 28. apríl 2021
- Viðmiðundagur 29. apríl 2021
- Lækkunardagur 30. apríl 2021
- Greiðsludagur 30. apríl 2021
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is