Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 10 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 10.066.666 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017 og 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins. Af framangreindum tilkynningum voru fjórar tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II, þ.e. að 6.500.000 nýjum hlutum, og 6 tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV, þ.e. 3.566.666 nýjum hlutum. Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 10.066.666 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 112.881.995 og því er reiknað meðalgengi 11,2134440.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 10.066.666 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.706.718.237 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 309.876.713 kr. að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II 84.125.000 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.