Ársreikningur Rangárþings ytra 2020


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2020 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn fimmtudaginn 15. apríl 2021 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2020 námu rekstrartekjur A og B hluta 2073,5 millj. kr. samanborið við 2011,2 millj. kr. árið 2019.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstrarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1975,9 millj.kr., en voru 1.747,5 millj. kr. á árinu 2019.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2020 námu 116 millj. kr. samanborið við 101,6 millj. kr. árið 2019. Rekstrarniðurstaða ársins er neikvæð um 14,9 millj. kr. fyrir A og B hluta, en var jákvæð um 163,7 millj. kr. árið 2019.

Veltufé frá rekstri í A og B hluta eru 156,1 millj. kr. Fjárfesting ársins í A og B hluta voru 325,2 millj. kr. Handbært fé í árslok voru 110,7 milljónir.

Viðhengi



Attachments

Rangárþing ytra Ársreikningur 2020 15_04_2021 til birtingar