Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2021. Upplýsingar vegna skráningar.


Meðfylgjandi eru endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund félagsins, sem verður haldinn kl. 16:00 mánudaginn 26. apríl 2021. Fundurinn fer alfarið fram rafrænt þar sem aðstæður leyfa það ekki að taka á móti hluthöfum.

Dagskrá aðalfundar er óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins 30. mars 2021 þar sem engar kröfur eða ályktanir bárust innan tilskilins frests frá hluthöfum um tiltekin mál. Önnur fundargögn en þau sem fylgja með, má finna á heimasíðu félagsins á slóðinni: http://eik.is/hluthafar

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hyggjast taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni www.smartagm.com og ekki seinna en kl. 16:00 sunnudaginn 25. apríl 2021.

Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá á netfanginu: stjornun@eik.is. Hluthafar sem hafa hug á að taka til máls á fundinum skulu upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.

Viðhengi



Attachments

Dagskrá aðalfundar 2021 Tillögur stjórnar fyrir aðalfund 2021