Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu í LSS150434


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 21. apríl 2021. Uppgjör viðskipta fer fram 26. apríl 2021.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 3.897.000.000 á bilinu 0,85% - 0,98%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.792.000.000 á ávöxtunarkröfunni 0,87%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 74.200.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 0,87% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.866.200.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 90.527.452.565 en er nú ISK 92.393.652.565.


Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is