Brim hf: Samningar um viðskiptavakt við Kviku banka hf. og Landsbankann hf.


Brim hf. hefur gert samning við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Brimi sem skráð eru í kauphöll Nasdaq OMX Iceland.

Bankinn mun samkvæmt samningnum setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins alla viðskiptadaga í viðskiptakerfi kauphallar. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki kr. 12.000.000 að markaðsvirði. Verði tilboðum Kviku tekið skal Kvika setja fram annað tilboð innan 10 mínútna frá síðustu viðskiptum. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal vera 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kvika er skuldbindinn til að eiga viðskipti skv. samningnum skal samsvara 84.000.000 að markaðsvirði.

Samningurinn tekur gildi frá og með 9. júlí 2021 og er ótímabundinn en uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Þá hefur Brim hf. einnig gert samning við Landsbankann hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Brimi sem skráð eru í kauphöll Nasdaq OMX Iceland.

Landsbankinn hf. skuldbindur sig sem viðskiptavaki til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins að lágmarki 15.000.000 kr. að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er 30.000.000 kr. að nettó markaðsvirði sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskiptavakans sem gengið er að. Sé hámarksmagni dagsins náð, fellur niður skylda viðskiptavakans til að setja fram tilboð á þeirri hlið sem fyllt hefur verið, þar til gengið hefur verið á tilboð viðskiptavakans á mótlægri hlið og nettó viðskiptamagn er aftur komið undir daglegt hámark.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum mun vera magnveginn auk þess að ákvarðast af 10 daga flökti á verði hlutabréfa Brims hf. eins og það birtist í upplýsingakerfi Bloomberg á hverjum tíma. Sé birt 10 daga flökt minna eða jafnt og 20% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 1%, sé birt 10 daga flökt hærra en 20% en lægra en 35% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 2%, að lokum ef birt 10 daga flökt er jafnt og eða hærra en 35% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 3%.

Samningurinn tekur gildi frá og með 9. júlí 2021 og er ótímabundinn en uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir fjármálastjóri, s: 858-1170