Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I: Stækkun skuldabréfaflokksins BUS 63 til fjármögnunar nýrrar lánveitingar


Í tengslum við lánveitingu til Búseta hsf. hefur fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I lokið stækkun skuldabréfaflokksins með auðkennið BUS 63. Skuldabréf voru seld að nafnvirði kr. 1.900.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Stærð skuldabréfaflokksins BUS 63 eftir stækkunina er kr. 6.920.000.000. Heildarheimild útgáfu er kr. 12.000.000.000.

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður á 3,15% föstum vöxtum, til 40 ára og  með jöfnum greiðslum vaxta og höfuðstóls. Lokagjalddagi er þann 5. febrúar 2063. Vaxta- og höfuðstólsgreiðslur greiðast mánaðarlega, í fyrsta skipti 6. mars 2023. Skuldabréf í flokknum eru fyrst uppgreiðanleg 5. febrúar 2031 með 1,5% uppgreiðslugjaldi sem stiglækkar og fellur niður 14 árum frá útgáfudegi.

Skuldabréfaútgáfur Landsbréfa – BÚS I fela ekki í sér bein veð en allar eignir fagfjárfestasjóðsins Landsbréf- BÚS I standa til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna samkvæmt almennum reglum kröfuréttar.

Ætlunin er að afrakstur sölu skuldabréfanna fari til nýrrar lánveitingar Landsbréfa – BÚS I til Búseta hsf. Miðað er við að það lán verði tryggt með hluta íbúðareigna Búseta hsf. við Tangabryggju í Reykjavík. Með nýrri lánveitingu og miðað við verðmat nýs veðandlags má reikna með að lánshlutfall í heild verði nærri 58%.

Skjöl sem tengjast skuldabréfaflokkunum BUS 56, BUS 60 og BUS 63 má nálgast á vefsíðunni: 

                        https://www.landsbref.is/serhaefdar-fjarfestingar/skrad-skuldabref

Nánari upplýsingar veitir Björn Snær Guðbrandsson, sjóðstjóri í síma 410 2500.