Reykjavík, 1. mars, 2012 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir febrúar eru eftirfarandi:
- Heildarviðskipti með hlutabréf í febrúar námu 3.844 milljónum eða 183 milljónum á dag. Þessu til samanburðar nam veltan með hlutabréf í janúar 3.294 milljónum eða 150 milljónum á dag.
- Mest voru viðskipti með bréf Icelandair 1.594 milljónir, með bréf Marel 1.337 milljónir, og með bréf Haga 585 milljónir.
- Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 2,6% milli mánaða og stendur nú í 981 stigi.
- Íslandsbanki var með mestu hlutdeildina á Aðalmarkaði 36,2%, Landsbankinn með 28,4% og Arion banki með 15,9%.
- Heildarviðskipti með skuldabréf námu 323 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar til 15,4 milljarða veltu á dag samanborið við 13,7 milljarða veltu á dag í janúar. Alls námu viðskipti með ríkisbréf 228 milljörðum en viðskipti með íbúðarbréf námu 86 milljörðum.
- MP banki var umsvifamestur á skuldabréfamarkaði með 24,2% hlutdeild, Íslandsbanki kom næst með 22,1% og þá Landsbankinn með 20,0%.
Frekari upplýsingar í viðhengi.
NASDAQ OMX Group, Inc. er stærsta kauphallarfyrirtæki heims. Það veitir viðskipta- og kauphallarþjónustu sem og almenna fyrirtækjaþjónustu í sex heimsálfum og með yfir 3.500 félög í viðskiptum er það í fararbroddi stærstu markaða heims. NASDAQ OMX býður félögum um allan heim upp á fjölda fjármögnunarkosta, þar á meðal U.S. listings market, NASDAQ OMX Nordic, NASDAQ OMX Baltic, NASDAQ OMX First North, og 144A geirann. Fyrirtækið býður upp á viðskipti með fjölda eignaflokka, svo sem hlutabréf, afleiður, skuldabréf, hrávörur, samsettar vörur og kauphallarsjóði. NASDAQ OMX upplýsingatækni styður starfsemi rúmlega 70 kauphalla, greiðslustofnana og verðbréfamiðstöðva í yfir 50 löndum. NASDAQ OMX Nordic og NASDAQ OMX Baltic eru ekki lögaðilar en hugtakið lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq OMX kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Íslandi, Tallinn, Ríga og Vilníus. Fyrir frekari upplýsingar um NASDAQ OMX, sjá http://www.nasdaqomx.com. *Fylgdust með NASDAQ OMX on Facebook (http://www.facebook.com/pages/NASDAQ-OMX/108167527653) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx).
Kristín Jóhannsdóttir
kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
525 2844/868 9836