- 3 mánaða uppgjör 2007


Afkoma Exista hf. á fyrsta ársfjórðungi 2007

Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista birti í dag kannað árshlutauppgjör fyrir
fyrstu þrjár mánuði ársins 2007. Í samræmi við yfirlýsingar félagsins sem fram
komu í síðustu afkomuskýrslu frá 8. febrúar sl. hafa eftirfarandi breytingar
verið gerðar á reikningsskilum Exista frá og með áramótum: 

•Kjölfestueignir í fjármálafyrirtækjum, þ.e.a.s. í Sampo Group og Kaupþingi
banka, verða hér eftir færðar með hlutdeildaraðferð í reikningum félagsins 

•Stjórn Exista hefur ákveðið að nýta heimild til þess að færa reikninga
félagsins í evrum frá og með fyrsta ársfjórðungi 2007 

Helstu niðurstöður árshlutauppgjörs fyrir fyrsta ársfjórðung 2007 eru þessar:

•Hagnaður eftir skatta 641 milljón evra (57,2 milljarðar króna)

•Hagnaður á hlut 0,06 evrur (5 krónur)

•Arðsemi eigin fjár 112,8% á ársgrundvelli

•Hagnaður af fjárfestingastarfsemi 467 milljónir evra eftir skatta (41,7
milljarðar króna) 

•Hagnaður af rekstrarstarfsemi 174 milljónir evra eftir skatta (15,5 milljarðar
króna) 

•Heildareignir 6,76 milljarðar evra (593 milljarða króna) í lok mars og jukust
um 54% á tímabilinu 

•Eigið fé 2,64 milljarðar evra (232 milljarða króna) í lok tímabils og jókst um
39% frá áramótum 

•Fjármögnun félagsins á fyrsta ársfjórðungi nam 1,67 milljörðum evra

•Eiginfjárhlutfall var 39,1% hinn 31. mars sl.

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður:
„Rekstur Exista var afar traustur á fyrsta ársfjórðungi en uppgjörið í dag
markar viss þáttaskil hjá félaginu. Með því að færa hlutdeild í hagnaði
Kaupþings og Sampo eykst enn frekar vægi fjármálaþjónustu í tekjum félagsins og
tekjugrunnurinn styrkist. Einnig er það rökrétt skref að færa reikninga
félagsins í evrum enda starfar Exista á alþjóðlegum markaði. Rekstur
samstæðunnar gengur vel og horfur eru almennt jákvæðar hjá tengdum félögum.
Áfram verður byggt á þeim grunni sem lagður hefur verið með það að markmiði að
tryggja hluthöfum trausta langtímaávöxtun.” 

Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir:

Sigurður Nordal
framkvæmdastjóri samskiptasviðs
sími: 550 8620 (ir@exista.com)

Anhänge

exista - interim report q1 2007.pdf exista - interim accounts q1 2007.pdf exista - arshlutaskyrsla q1 2007.pdf
GlobeNewswire