Sameiningu Hf. Eimskipafélags Íslands og Eimskipafélags Íslands ehf. er formlega lokið. Sameiningin miðast við 1. nóvember 2006. Skuldabréf Eimskipafélags Íslands ehf., sem skráð eru í OMX Kauphöll Íslands, verða færð yfir á Hf. Eimskipafélags Íslands í kjölfarið. Þessi sameining hefur ekki frekari áhrif á félagið. Nánari upplýsingar: Stefán Ágúst Magnússon, fjármálstjóri Eimskips, s: 525 7200 Um Eimskip Eimskip býður viðskiptavinum heildarlausnir í flutningum, þ.m.t. skipaflutninga, flugflutninga og landflutninga, með sérstakri áherslu á hitastýrða flutninga og geymslu, Eimskip rekur 184 starfsstöðvar í yfir 30 löndum. Fyrirtækið er með 40-50 skip í rekstri, 25 flugvélar, 1.350 flutningabíla og tengivagna og yfir 100 frystigeymslur. Starfsmenn eru um 9.500.
- Sameiningu Hf. Eimskipafélags Íslands og Eimskipafélags Íslands ehf. lokið
| Quelle: Eimskipafélag Íslands ehf.