- Tilkynning um regluleg viðskipti við Seðlabanki Íslands


Í samræmi við reglur um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands býður
Seðlabankinn þriðjudaginn 19. júní 2007, kl. 11 f.h., þeim lánastofnunum sem
átt geta viðskipti við bankann, lán til 8 daga gegn veði í verðbréfum sem
Seðlabankinn metur hæf til tryggingar.  Nýjar reglur um viðskipti
fjármálafyrirtækja við Seðlabankann taka gildi í þessari viku og fela þær m.a.
í sér að veðlánadagar flytjast frá þriðjudögum yfir á miðvikudaga.
Fréttatilkynning þess efnis verður send út í dag. 

Lánin bjóðast á fastri ávöxtunarkröfu, 14,25 %. 

Beiðni um lán þarf að berast alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 19. júní 2007. Hægt er
að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569 9604, ef það er staðfest fyrirfram
með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/71). 

Um framkvæmd og frágang viðskipta vísast að öðru leyti til reglna um viðskipti
lánastofnana við Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður um heildarfjárhæð
viðskipta kl. 13:00 þriðjudaginn 19. júní 2007. 

Seðlabanki Íslands býður einnig lánastofnunum innstæðubréf til 8 daga
þriðjudaginn 19. júní 2007 kl. 14:30 e.h. Hægt er að senda inn beiðni með
símbréfi á nr. 569- 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða-
og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/671). Ávöxtunarkrafa innstæðubréfa er
14,10%. Heildarfjárhæð innstæðubréfa verður tilkynnt kl. 15:00  þriðjudaginn
19. júní  2007. 
GlobeNewswire