Og fjarskipti ehf. (Vodafone), dótturfélag Teymis hf., hefur samið við Nova ehf. um samnýtingu farsímakerfa. Samningurinn felur í sér að Vodafone fær aðgang að nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju kynslóð farsíma (3G) og Nova fær aðgang að GSM farsímakerfi Vodafone. Stjórnir Og fjarskipta ehf. og Nova ehf. telja að samningurinn feli í sér verulegt hagræði fyrir bæði félögin. Samkomulagið er í samræmi við útboðslýsingu Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir 3G tíðniheimildir sem veitir rétthöfum svigrúm til samnýtingar á dreifikerfum. Og fjarskipti (Vodafone) er fjarskiptafyrirtæki í eigu Teymis hf. Starfsmenn Vodafone eru um 350 talsins og þjónusta viðskiptavini á heimilum og hjá fyrirtækjum um land allt með farsíma, síma, nettengingar og sjónvarp. GSM þjónusta Vodafone nær til 98% landsmanna og með samstarfi við Vodafone Group, eitt öflugasta fjarskiptafyrirtæki í heimi, er viðskiptavinum Vodafone tryggð örugg farsímaþjónusta um allan heim. Nánari upplýsingar veitir: Dóra Sif Tynes, hdl. Framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Teymis Sími: 595 5000