Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans árið 2007.
2. Endurskoðaðir ársreikningar bankans fyrir árið 2007.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á árinu
2007.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum félagins.
5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu bankans.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosning endurskoðunarfélags.
8. Ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir næsta kjörtímabil.
9. Tillaga um framlag í Menningarsjóð Glitnis.
10. Tillaga um heimild til stjórnar til kaupa á eigin hlutum í
Glitni banka hf.
11. Önnur mál.
Tillögur fyrir aðalfund Glitnis banka hf.
Stjórn Glitnis banka hf. gerir eftirfarandi tillögur til aðalfundar
bankans sem haldinn verður þann 20. febrúar 2008.
A. Tillaga stjórnar um ráðstöfun hagnaðar og greiðslu arðs.
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir að af hagnaði rekstrarársins
2007 eftir skatta, sem nam 27,651 milljörðum króna, skuli greiða
5,506 milljarða króna í arð til hluthafa í samræmi við hlutafjáreign
þeirra eða sem nemur 19,9% af hagnaði ársins 2007 og 37% af útgefnu
hlutafé. Gjalddagi argreiðslu verði 20. febrúar 2008, en vaxtalaus
útgreiðsla arðs af hálfu félagsins fari fram 13. mars 2008. Því sem
eftir stendur af hagnaði ársins skal ráðstafað til hækkunar á eigin
fé Glitnis banka hf.
Jafnframt samþykkir aðalfundur að hluthöfum skuli gefinn kostur á að
fá allt að helming arðs síns greiddan í hlutafé í Glitni banka hf. á
verðinu 17,10 per hlut.
B. Tillaga stjórnar um endurskoðanda.
Aðalfundur Glitnis banka hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf.
endurskoðunarfélag félagsins.
C. Tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna.
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir að þóknun til hvers
stjórnarmanns verði kr. 350.000 á mánuði, þóknun varaformanns
stjórnar verði kr. 700.000 á mánuði og þóknun til formanns stjórnar
verði kr. 1.050.000 á mánuði. Þóknun varamanna í stjórn verði kr.
100.000 fyrir hvern setinn fund. Þóknun stjórnarmanna fyrir setu í
undirnefndum verði kr. 75.000 á mánuði en þóknun formanns í hverri
undirnefnd verði kr. 150.000 á mánuði.
D. Tillaga stjórnar um framlag í Menningarsjóð Glitnis.
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir að framlag í Menningarsjóð
Glitnis verði 200 milljónir króna á árinu 2008.
E. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum í Glitni
banka hf.
Aðalfundur Glitnis banka hf. veitir stjórn heimild til þess að kaupa
eigin hluti í félaginu eða taka þá að veði. Heimild þessi standi í
18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup og veðsetning hluta
fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.
Kaupverð hluta skal vera lægst 10% lægra og hæst 10% hærra en skráð
kaup- eða sölugengi í Kauphöll Íslands.
Jafnframt fellur niður samhljóða heimild aðalfundar frá 20. febrúar
2007.
F. Tillaga stjórnar um að eftirfarandi starfskjarastefna verði
samþykkt fyrir forstjóra og stjórnendur bankans."Starfskjarastefna Glitnis banka hf. skv. 79. gr. a laga nr. 2/1995
um hlutafélög.
Starfskjarastefna Glitnis banka hf. miðar að því að Glitnir banki hf.
og dótturfélög hans séu samkeppnishæf og aðlaðandi fyrir þann mannauð
sem bankinn þarf að hafa til að ná árangri á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Starfskjarastefnan nær yfir helstu
grundvallaratriði í starfs- og launakjörum forstjóra og stjórnenda
bankans. Starfskjör stjórnarmanna skulu ákveðin á aðalfundi
félagsins fyrir komandi starfsár.
Til viðbótar við föst laun er heimilt að veita, forstjóra og
stjórnendum kaupaukagreiðslur, starfsfríðindi og annan efnahagslegan
ábata sem hér fer á eftir (en er þó ekki tæmandi talinn):
* Árangurstengdar kaupaukagreiðslur sem miðast við árangur í
rekstri á bankanum í heild sinni eða einstökum sviðum eða
deildum. Einnig eru persónulegur árangur og leiðtogahæfni höfð
til viðmiðunar, ásamt því að taka tillit til þess hvernig
stjórnendur hafa haft gildi bankans að leiðarljósi. Kaup- og
söluréttir á hlutabréfum í Glitni banka hf. og/eða dótturfélögum
hans. Gerð er grein fyrir slíku í ársskýrslu félagsins.
Kaupréttir starfsmanna geta á hverjum tíma numið allt að 5% af
útgefnu hlutafé bankans.
* Glitnir banki hf. greiðir mótframlag til lífeyrissjóðs skv. lögum
og kjarasamningum í hverju því landi sem Glitnir banki hf. er með
starfsemi. Heimilt er að gera sérsamninga við stjórnendur um
aukaframlag í lífeyrissjóð.
* Bankinn leitast við að viðhalda og auka hæfni stjórnenda til að
styðja við áframhaldandi vöxt og viðgang félagsins.
* Greiðslur til stjórnenda við starfslok skulu að jafnaði einungis
byggjast á viðeigandi ráðningarsamningi. Bankanum er þó heimilt
við sérstakar aðstæður, ef slík ráðstöfun er í þágu bankans, að
gera sérstaka starfslokasamninga við stjórnendur.
Þessi starfskjarastefna er leiðbeinandi fyrir stjórn Glitnis banka
hf. mæli lög ekki fyrir um annað og tekur í aðalatriðum til þeirra
þátta er nefndir eru hér að ofan, án þess þó að takmarkast af þeim.
Stjórn Glitnis banka hf. mun skoða og taka afstöðu til allra þátta og
atriða er varða starfs- og launakjör forstjóra og stjórnenda bankans
og dótturfélaga hans eftir því sem tilefni gefst til."
G. Tillaga stjórnar til breytinga á samþykktum félagsins.
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir neðangreindar breytingar á
samþykktum félagsins:
Að 4. gr. samþykkta félagsins verði breytt á þann veg að stjórn fái
heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 4.200 milljónir
króna, þar með talin heimild til að gefa út allt að 200 milljónir
króna í nýju hlutafé til að mæta arðgreiðslum til hluthafa. 4. gr.
orðist svo:"Hlutafé félagsins er kr. 14.880.701.303 - fjórtán milljarðar átta
hundruð og áttatíu milljónir sjö hundruð og eitt þúsund þrjú hundruð
og þrjár krónur - og skiptist í jafn marga hluti að fjárhæð 1 króna.
Stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr.
1.500.000.000 - eitt þúsund og fimm hundruð milljónir króna - með
áskrift nýrra hluta. Stjórn skal ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör
hinna nýju hluta og í hvaða áföngum heimildin verður nýtt. Hluthafar
skulu eiga forgangsrétt til að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu
í réttu hlutfalli við hlutafjáreign sína. Stjórn getur sett nánari
reglur um sölu hlutanna. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar
samkvæmt þessari málsgrein fellur niður í árslok 2009 að því marki
sem hún er þá enn ónotuð.
Stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr.
2.500.000.000 - tvö þúsund og fimm hundruð milljónir króna - með
áskrift nýrra hluta. Stjórn skal ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör
hinna nýju hluta og í hvaða áföngum heimildin verður nýtt. Hluthafar
hafa ekki forgangsrétt til áskriftar að hinum nýju hlutum. Stjórn
getur sett nánari reglur um sölu hlutanna. Heimild stjórnar til
hlutafjárhækkunar samkvæmt þessari málsgrein fellur niður í árslok
2009 að því marki sem hún er þá enn ónotuð.
Stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr.
200.000.000 - tvö hundruð milljónir króna - til að mæta arðgreiðslum
til hluthafa í formi hlutafjár vegna rekstrarársins 2007."
Dagskrá og tillögur til aðalfundar Glitnis banka hf. þann 20. febrúar 2008
| Quelle: Glitnir banki hf.