Eftirfarandi tillaga stjórnar Glitnis banka hf. var samþykkt á hluthafafundi Glitnis banka hf. sem haldinn var þann 19. mars 2008 kl. 9.00.: Eftirfarandi málsgrein verður ný málsgrein (5. mgr.) í 4. gr. samþykkta Glitnis banka hf.: Stjórn félagsins er heimilt að gefa út breytanleg skuldabréf að hámarki að fjárhæð kr. 15.000.000.000 -fimmtán milljarðar króna- með þeim skilmálum að heimilt sé eða skylt að breyta slíkri skuld í hluti í Glitni banka hf. að uppfylltum nánari skilyrðum samkvæmt ákvörðun stjórnar bankans. Stjórninni er ennfremur heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 1.250.000.000 -einn milljarð og tvö hundruð og fimmtíu milljónir króna- að nafnvirði til að mæta skuldbindingum félagsins samkvæmt hinum breytanlegu skuldabréfum. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum vegna hinna nýju hluta samkvæmt 3. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu, þeir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar og engar hömlur skulu vera á viðskiptum með þá. Stjórn skal að öðru leyti taka ákvörðun um skilmála útgáfu hinna breytanlegu skuldabréfa og um hækkun hlutafjárins. Stjórn er ennfremur heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við útgáfu hinna breytanlegu skuldabréfa og nauðsynlega hlutafjárhækkun. Heimild þessi til að gefa út breytanleg skuldabréf og hækka hlutaféð gildir til 19. mars 2013.
Niðurstaða hluthafafundar Glitnis banka hf. sem haldinn var 19. mars 2008.
| Quelle: Glitnir banki hf.