Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur í 15,5%. Í Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar. Næsta reglulega ákvörðun bankastjórnar um stýrirvexti verður birt fimmtudaginn 22. maí 2008.