Hinn 27. mars 2008 lagði Exista hf. fram yfirtökutilboð í öll hlutabréf Skipta hf. Var yfirtökutilboðið háð því eina skilyrði að samkeppnisyfirvöld samþykktu kaupin, væri samþykki þeirra á annað borð áskilið lögum samkvæmt. Í gær, 17. apríl 2008, tók Samkeppniseftirlitið þá ákvörðun að ekki væri tilefni til að hafast frekar að varðandi kaup Exista hf. á öllu hlutafé í Skiptum hf. Er ákvörðunina í heild sinni að finna á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins, http://www.samkeppni.is. Samkvæmt framansögðu hefur eina skilyrði yfirtökutilboðs Exista hf. verið uppfyllt og er sérhvert samþykki við tilboðinu skuldbindandi og óafturkallanlegt.