Í fyrra hófust tilraunasiglingar frá Nýfundnalandi í Kanada til Rússlands og Evrópu á vegum Eimskip CTG með frysta rækju og loðnu en eftirspurn eftir þessum flutningum er sérstaklega mikil á tímabilinu frá maí til október. Þessum árstíðarsveiflum mætir Eimskip með frystiskipum á þessum leiðum og getur þar af leiðandi boðið útflytjendum í Nýfundnalandi og Nova Scotia þrjá mismunandi flutningsmáta og mikla flutningatíðni. Eigin gámasiglingar á tveggja vikna fresti, frystiskipaflutninga og vikulega frystiflutningsmiðlun. Skip Eimskip CTG, Polfoss og Langfoss hafa annað Nýfundnalandssiglingunum, en Dalfoss er einnig á leiðinni vestur um haf til að anna eftirspurn. Nýju frystiskipin sem félagið hefur fengið afhent á undanförnum árum þykja henta afar vel í þetta verkefni, þar sem skipin eru hraðskreið og geta einnig borið frystigáma. Fullestuð bera skipin um 3000 tonn hvert. Einnig hefur Eimskip CTG sótt inn á Austurströnd Bandaríkjanna til að sinna flutningum á kjúklingi, svínakjöti og kalkúnakjöti til Klaipeda í Litháen. Þaðan mun förmunum vera dreift með bílum og lestum til Hvíta-Rússlands, Úkraínu og Kasakstan. Eimskip CTG rekur 11- 15 frystiskip á hverjum tíma og er floti félagsins sá yngsti í heimi í frysti- og kæliflutningum á sjó. Að sögn Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips, þá eru verkefni á borð við þetta í takt við nýlega boðaðar áherslur. „Innri vöxtur félagsins er með þessu nokkur, þar sem ekki er ráðist í neinar umframfjárfestingar í verkefninu“, segir Gylfi og bætir við; „Nýlegur frystiskipafloti Eimskip CTG annar þessum siglingum fyllilega, og gerir okkur kleift að nýta þá fjárfestingu sem við höfum lagt í enn betur en áður.“
Eimskip CTG siglir í fyrsta sinn til Ameríku með eigin skip
| Quelle: Hf. Eimskipafélag Íslands