29. júlí 2008
Afkoma Vinnslustöðvarinnar hf.
rekstrartímabilið 1. janúar 2008 - 30. júní 2008
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti í dag uppgjör félagsins fyrir fyrstu
sex mánuði rekstrarársins. Þar kemur meðal annars fram eftirfarandi:
Tap var á rekstrinum á tímabilinu að upphæð 950 milljónir króna. Er það mikil
breyting frá í fyrra þegar hagnaður var fyrstu sex mánuði ársins að upphæð 1.116
milljónir króna.
Heildartekjur félagsins voru 3.857 milljónir króna og hækkuðu um 16% frá sama
tímabili í fyrra. Rekstrarekjur fiskvinnslu jukust um rúm 11% en tekjur
útgerðar lækkuðu lítillega. Rekstrargjöld jukust um liðlega 22%. Jukust
rekstrargjöld í útgerðardeildum en lækkuðu í fiskvinnsludeildum.
Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 968
milljónum króna og var nánast sú sama og á sama tímabili á fyrra ári.
Framlegðarhlutfall lækkaði úr 28,9% í fyrra í 25,1% í ár.
Veltufé frá rekstri nam 892 milljón króna og var 23% af rekstrartekjum, jókst
hlutfallið um 6% frá sama tímabili í fyrra.
Afskriftir hækkuðu um rúmar 7 milljónir króna frá fyrra ári og voru 219
milljónir króna.
Tekjur Hugins ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 525 milljónir
króna en 434 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Framlegð félagsins á
tímabilinu var 114 milljónir króna. Tap félagsins eftir skatta nam 395
milljónum króna en gengistap félagsins nam 418 milljónum króna. Hagnaður var á
rekstri félagsins að upphæð 127 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.
Hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í tapi Hugins ehf. nam 190 milljónum króna.
Tekjur About Fish ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 616
milljónir króna og framlegð þess 17 milljónir króna. Tap félagsins eftir skatta
nam 7 milljónum króna og var hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í því tapi rúmlega 3
milljónir króna.
Í lok þessa uppgjörstímabils festi Vinnslustöðin kaup á 35% hlutafjár í félaginu
Ufsabergi-útgerð ehf. sem gerir út togskipið Gullberg VE-292. Eignarhluturinn í
félaginu er færður meðal eigna Vinnslustöðvarinnar en ekki hefur verið færð
hlutdeild í hagnaði/tapi þess.
Niðurstaða fjármagnsliða félagsins var neikvæð um 1.709 milljón króna á fyrstu
sex mánuðum 2008, þar af nam gengistap langtímalána félagsins 1.614 milljónum
króna. Á sama tímabili í fyrra voru fjármagnsliðir jákvæðir um 530 milljónir
króna.
Reiknaður tekjufærður tekjuskattur á tímabilinu var 203 milljónir króna.
Félagið stendur að rannsóknar- og þróunarvinnu við veiðar og vinnslu á humri.
Lítill kostnaður hefur fallið til vegna rannsóknaverkefnanna.
Heildarskuldir og skuldbindingar félagsins hækkuðu um 2.301 milljónir króna frá
upphafi árs til júníloka og eru 8.530 milljónir króna. Aukningin er að stórum
hluta tilkomin vegna veikingar íslensku krónunnar á tímabilinu en
langtímaskuldir félagsins eru að mestu leyti í erlendum myntum. Nettóskuldir
eru 5.792 milljónir króna en þær voru 4.055 milljónir króna í lok síðasta árs;
jukust því um 1.737 milljónir króna.
Eigið fé lækkaði frá áramótum um 1.401 milljónir króna og er 1.219 milljónir
króna eða 12,5% af heildarefnahag. Lækkun varð á eigin fé á tímabilinu, annars
vegar vegna taps tímabilsins að upphæð 950 milljónir króna og hinsvegar vegna
útgreiðslu arðs að upphæð 451 milljón króna.
176 milljóna króna hagnaður á öðrum ársfjórðungi
Á öðrum ársfjórðungi, þ.e. frá 1. apríl til 30. júní 2008, voru tekjur
Vinnslustöðvarinnar 2.234 milljónir króna og rekstrargjöld 1.636 milljónir
króna. Framlegð tímabilsins var því 598 milljónir króna eða 26,8% af tekjum.
Hlutdeild félagsins í tapi hlutdeildarfélaga nam 32 milljónum króna.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 238 milljónir króna. Hagnaður tímabilsins
var því 176 milljón króna. Á sama tímabili í fyrra var framlegð 371 milljónir
króna og hagnaður af rekstri 351 milljónir króna.
Rekstrarhorfur á árinu
Rekstrarhorfur það sem eftir er ársins eru ágætar. Veik króna og hátt
afurðaverð flestra afurða félagsins, einkum mjöls og lýsis, vekur vonir um að
afkoma á seinni hluta ársins verði ágæt. Veiðar uppsjávarskipa félagsins hafa
gengið vel og makrílveiði er góð búbót. Hækkandi verð ýmissa aðfanga vinnur á
móti ávinningi af gengisfalli krónu. Hátt olíuverð vegur þungt í rekstri
félagsins og hefur neikvæð áhrif auk þess sem áhrifa minnkandi eftirspurnar er
tekið að gæta, einkum í dýrari afurðaflokkum.
Mikill óróleiki á gjaldeyrismarkaði hefur afgerandi þýðingu um afkomu á síðari
helmingi rekstrarársins. Frekari veiking mun að sjálfsögðu leiða til lakari
afkomu en styrking leiða til minna taps á árinu.
Frekari upplýsingar:
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
í símum 488 8004 og 897 9607
- 6 mánaða uppgjör
| Quelle: Vinnslustöðin hf.