- Seðlabanki Íslands dregur á gjaldmiðlaskiptasamninga


Seðlabanki Íslands hefur í dag dregið á gjaldmiðlaskiptasamninga að fjárhæð 400
milljónir evra. Dregið hefur verið á gjaldmiðlaskipta­samninga sem gerðir voru
við seðlabanka Danmerkur og Noregs, og nemur hvor ádráttur 200 milljónum evra.
Hinn 16. maí s.l. gerðu seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur tvíhliða
gjaldmiðlaskiptasamninga við Seðlabanka Íslands. Hver samningur um sig veitti
aðgang að allt að 500 milljónum evra gegn íslenskum krónum eða alls 1,5
milljónum evra. 


Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bankastjórnar í síma 569 9600.
GlobeNewswire