- Ársreikningur 2008


- Tekjur aukast um 19% frá fyrra ári

•  Salan jókst um 6,3 milljarða króna á milli ára eða um 19%. Sala nam 39,0
   milljörðum króna samanborið við 32,7 milljarða árið áður. 

•  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 9,0
   milljörðum króna samanborið við 9,5 milljarða árið áður. EBITDA hlutfallið
   var 23%.
 
•  Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 10,1 milljarði króna
   samanborið við 9,0 milljarða árið áður. Eftir vexti og skatta nam handbært fé
   frá rekstri 8,4 milljörðum króna.
 
•  Tap Skipta á árinu nam 6,4 milljörðum  króna sem skýrist einkum af
   gengisþróun íslensku krónunnar á tímabilinu og virðisrýrnun óefnislegra
   eigna. 

•  Fjármagnsgjöld voru 9,5 milljarðar króna en þar af nam gengistap 3,2
   milljörðum króna. 

•  32% af tekjum samstæðunnar koma af erlendri starfsemi félagsins.
 
•  Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir)
   námu 51,1 milljarði um áramót en voru 50,0 milljarðar árið áður. 

•  Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 28%.


Helstu atburðir á árinu

•  Miklar breytingar urðu á starfsumhverfi félagsins á síðari hluta ársins.
   Efnahagsþrengingar settu mark sitt á starfsemina. Gripið var til margháttaðra
   aðgerða í rekstrinum til að tryggja afkomu félagsins en búist er við
   minnkandi eftirspurn á stærstu mörkuðum félagsins á komandi misserum. 

•  Síminn hélt áfram uppbyggingu á langdrægu GSM kerfi og hóf uppbyggingu á
   langdrægu 3G kerfi sem mun gefa notendum kost á öflugu háhraðasambandi um
   allt land og á miðunum í kringum Ísland. Þá tók Síminn þátt  í útboði
   Fjarskiptasjóðs um uppbyggingu háhraðanets um allt land og hefur  samningur
   milli aðila nú verið undirritaður. Með samningum er  öllum landsmönnum tryggt
   háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og hafa þau
   fyrstu þegar verið tengd. 

•  Erlend starfsemi Skipta gekk ágætlega á árinu. Upplýsingatæknifyrirtækið
   Sirius IT skilar mjög góðri afkomu og treysti enn verkefnastöðu sína.
   Fjarskiptafélög Skipta í Danmörku voru sameinuð á árinu undir heitinu Síminn
   Danmark. 

•  Hinn 19. mars 2008 tilkynnti Exista um valfrjálst tilboð í allt hlutafé
   Skipta hf. Tilboðið hljóðaði upp á 6,64 krónur á hlut og var greitt með nýjum
   hlutum í Exista. Tilboðstímabil stóð frá 27. mars til 26. maí og hafði Exista
   eignast 99,22% hlutafjár við lok tilboðstímabils. Í kjölfar þess og
   afskráningar Skipta voru útistandandi hlutir innkallaðir og er Skipti nú
   100% í eigu Exista. 


Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta hf.

“Að baki er viðburðaríkt  ár hjá Skiptum líkt og öðrum íslenskum fyrirtækjum.
Afkoman af reglulegri starfsemi félagsins á árinu er  ágæt miðað við aðstæður.
Dótturfélög samstæðunnar hafa unnið að því að aðlaga sig að því breytta
rekstrarumhverfi sem atburðir haustsins báru með sér og það er ljóst að
framundan eru krefjandi  tímar í rekstrinum. Gengisþróun íslensku krónunnar var
verulega óhagstæð á árinu og skýrir að miklu leyti tap félagsins, þrátt fyrir
gengisvarnir. Góður tekjuvöxtur var í starfsemi Skipta sem kemur að verulegu
leyti frá erlendri starfsemi félagsins. Fjárhagsstaðan um áramót er góð, sem
stafar annars vegar af sterku fjárstreymi úr rekstrinum og hins vegar af sölu
eigna á síðari hluta ársins. Félagið er því í ágætri stöðu til að takast á við
þá tíma sem framundan eru.“ 


Niðurstaða í rekstri á árinu 2008

Reikningsskilaaðferðir
Samstæðuársreikningur Skipta hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af
Evrópusambandinu.  Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma ársreikning Skipta
hf. og dótturfélaga þess.  Stjórn og forstjóri Skipta hf. hefur staðfest
ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2008. 

Rekstur
Salan á árinu 2008 nam 39.013 m.kr. samanborið við 32.719 m.kr. árið áður, sem
er 19% aukning. Þessi aukning skýrist einkum af auknum tekjum af erlendri
starfsemi.
 
Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir (EBITDA) var 8.966 m.kr. miðað
við 9.493 m.kr.  árið áður. EBITDA hlutfallið er nú 23% samanborið við 28% árið
áður. Skipti hafa á undanförnum misserum keypt fyrirtæki í
upplýsingatæknigeiranum en sá markaður skilar að jafnaði lægra EBITDA hlutfalli
en fyrirtæki í fjarskiptageiranum. Á það ber hins vegar að líta að
fjárfestingar eru að jafnaði minni í upplýsingatæknigeiranum. Þá eiga
fjarskiptafélög Skipta erlendis ekki fjarskiptanetin sem þau reka þjónustu sína
á og eru því með lægri EBITDA hlutfall en þau fjarskiptafélög sem eiga og reka
sín eigin fjarskiptanet. 

Afskriftir félagsins námu 6.354 m.kr. á árinu samanborið við 4.202 m.kr. árið
áður. Munurinn skýrist einkum af virðisrýrnun óefnislegra eigna. 
Tap samstæðunnar eftir skatta nam 6.424 m.kr. samanborið við 3.082 m.kr. hagnað
á árinu 2007. Tapið nú skýrist einkum af gengisþróun íslensku krónunnar á árinu
og virðisrýrnun óefnislegra eigna. 



Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 10.102 m.kr. á árinu en var 
9.014 m.kr. á fyrra ári.
 
Fjárfestingar samstæðunnar í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 4.151
m.kr. á árinu en námu 3.490 m.kr. fyrir sama tímabil 2007.
 
Efnahagur
Heildareignir samstæðunnar námu 128.657 m.kr. 31. des 2008 og jukust eignir um
32 % á árinu eða um 31,0 ma.kr. Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum
(nettó vaxtaberandi skuldir) námu 51,1 miljörðum um áramót en voru 50,0
milljarðar árið áður. Skipti var með gengisvarnir sem vörðu félagið að hluta
fyrir gengislækkun íslensku krónunnar á árinu auk þess sem félagið seldi eignir
á síðari hluta ársins. Hlutfall nettó vaxtaberandi skulda/EBITDA var 5,7 um
áramót en var 5,3 árið áður. 

Eigið fé félagsins nam 36.547 m.kr. í lok árs 2008 og eiginfjárhlutfall var
28%. 

Staða og horfur

3G væðing Símans er á fullu skriði og nær 3G þjónusta Símans nú til ríflega 
80% landsmanna. Síminn vinnur einnig að uppsetningu á langdrægum 3G sendum sem
munu þegar fram líða stundir ná til stærra landsvæðis en hefðbundið 2G
þjónustusvæði nær til í dag. Stærra þjónustusvæði er þó ekki mesti ávinningur
viðskiptavina heldur þeir möguleikar sem þeim mun standa til boða í nýju
háhraða farsímaneti. Það hefur alltaf verið skýr stefna hjá Símanum að
kerfisuppbygging standi undir framtíðarþörf markaðar til fjarskiptaþjónustu og
3G er næsta skref í slíkri uppbyggingu sem arftaki þeirrar farsímaþjónustu sem
við best þekkjum í dag. Þá tók Síminn þátt  í útboði Fjarskiptasjóðs um
uppbyggingu háhraðanets um allt land og hefur  samningur milli aðila nú verið
undirritaður. Með samningum er  öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir
árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan
mánaðar. Samningsfjárhæðin er 606 milljónir króna. 

Að undangengnu útboði sömdu  Farice hf. og Míla ehf. um fjarskiptaþjónustu til
tíu ára. Samningurinn felur í sér að Míla veitir fjarskiptaþjónustu til Farice,
vegna uppbyggingar Farice á nýja sæstrengnum Danice og stækkana sambanda á
FARICE-1 sæstrengnum. Þessi samningur mun gera það að verkum að Míla mun
margfalda þá flutningsgetu sem fyrirtækið hafði fyrir og gefa íslenskum
fjarskiptafélögum tækifæri á að stækka sín sambönd og þá um leið efla
þjónustuna við sína viðskiptavini. Ljósið heim er ný þjónusta sem Míla setti á
markað á síðasta ári. Hún felur í sér aðgang viðskiptavina Mílu að
ljósheimtaug, þar sem notandi er með ljósleiðara tengdan í hús hjá sér í stað
hefðbundinnar koparlínu. Þjónustan verður eingöngu í boði í nýjum hverfum.
Ljósheimtaugin gefur notandanum meiri möguleika á bandbreiðri þjónustu eins og
fjölbreyttu sjónvarpsefni og öryggisþjónustu. 

Skipti tóku yfir hluti í tveimur fjarskiptafélögum í Tékklandi af Exista hf. á
fyrri hluta ársins. Hluturinn sem um ræðir jafngilti 8,25% hlut í
eignarhaldsfélagi sem á annars vegar 39% hlut í T-Mobile Czech Republic (TMCZ)
og hins vegar 100% í Ceske Radiokommunikace (CRa). Á síðari hluta ársins voru
þessir hlutir seldir. Skipti var með til skoðunar að endurfjárfesta í félögunum
en ekki varð af því.
 
Í upphafi ársins hætti Skjárinn framleiðslu á eigin sjónvarpsefni og með
samstarfi við íslensk kvikmyndagerðafyrirtæki var tryggður betri rekstur og góð
framleiðsla. Veiking íslensku krónunnar, óheilbrigð samkeppni af hálfu hins
opinbera og harkalegur samdráttur á auglýsingamarkaði í kjölfar bankahrunsins
hafði mikil áhrif á rekstur Skjásins á árinu.  Óvissa myndaðist um framtíð
sjónvarpsstöðvarinnar SkjásEins þrátt fyrir gott áhorf, en vikulega horfðu um
80% Íslendinga á aldrinum 12-80 ára, á SkjáEinn á árinu.  Notkun á SkjáBíói
gekk betur og áskriftartekjur af SkjáHeimi voru yfir því sem áætlun gerði ráð
fyrir á árinu, og vann það að hluta til á móti tekjusamdrætti á
auglýsingamarkaðinum.  Samkeppnisstaða einkarekinna fjölmiðla er afar erfið
vegna þeirrar stöðu sem RÚV hefur á markaðinum, í krafti ríflegrar meðgjafar
frá skattborgurum.  Á seinasta ári var því unnið að því að leiðrétta þetta
umhverfi með því að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði.  Því miður tókst
ekki að ljúka því fyrir áramót og enn ríkir mikil óvissa um framtíð Skjásins. 
Rekstur Já gekk samkvæmt áætlun á árinu.  Já gaf út Símaskrána 2008 í lok maí
með nýstárlegu sniði, en hún var unnin í samstarfi við rithöfundinn Hugleik
Dagsson sem birti nýja sögu sína “Garðarshólma” inni í Símaskránni, skráin fékk
sínar bestu viðtökur frá upphafi og um eitt hundrað þúsund eintök af henni fóru
út á fyrstu þremur dögunum.  Ánægja viðskiptavina með þjónustu 118 mældist sú
mesta frá upphafi mælinga á árinu og vinsældir vefmiðilsins Já.is héldu áfram
að aukast, einstökum vikulegum notendum fjölgaði um 23% frá fyrra ári og
innlitum um 39%. 

On-Waves, dótturfélag Símans, sérhæfir sig í að bjóða farsímalausnir um borð í
skemmtiferðaskipum og ferjum, ásamt fraktskipum. Mjög góður vöxtur er í
starfseminni og félagið undirritaði á árinu fjölmarga samninga um
fjarskiptaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum.
 
Fyrirtæki Símans í Danmörku; Business Phone og Ventelo voru sameinuð í byrjun
mars undir nýju nafni - Síminn Danmark A/S. Markmið sameiningarinnar var að
nýta betur styrk beggja fyrirtækja og ná fram samlegðaráhrifum félaga í líkum
rekstri. Í dag starfa 75 manns hjá fyrirtækinu sem býður alhliða
fjarskiptaþjónustu til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Danmörku. Yfir 6.500
fyrirtæki eru í viðskiptum við Símann Danmark. 

Rekstur upplýsingatæknifélagsins Sirius IT gekk mjög vel á árinu. Verkefnastaða
félagsins er mjög góð og á síðasta ári gerði fyrirtækið marga stóra
viðskiptasamninga bæði við núverandi og nýja viðskiptavini.  Meðal
viðskiptavina Sirius IT eru margir opinberir aðilar, ríkisstofnanir,
sveitarfélög og lífeyrissjóðir.  Einnig eru stór einkafyrirtæki aðallega í
ýmsum þjónustugreinum, s.s. orkufyrirtæki, fyrirtæki í öryggisþjónustu,
tryggingarstarfsemi og fjölmiðlun.  Kjarninn í rekstri Sirius IT byggir
aðallega á viðhaldi og rekstri stórra upplýsingarkerfa sem oftar en ekki er
grunnur í rekstri viðkomandi aðila. Almennt má segja að horfur í rekstri Sirius
IT séu góðar. 

Í byrjun mars tilkynnti einkavæðingarnefnd slóvensku ríkisstjórnarinnar að
slóvenska fjarskiptafélagið Telekom Slovenije yrði ekki selt að svo stöddu.
Skipti var annar tveggja bjóðenda í félagið. 

Hinn 19. mars sl. tilkynnti Exista um valfrjálst tilboð í allt hlutafé Skipta
hf. Tilboðið hljóðaði upp á 6,64 krónur á hlut og var greitt með nýjum hlutum í
Exista. Tilboðstímabil stóð frá 27. mars til 26. maí og hafði Exista eignast
99,22% hlutafjár við lok tilboðstímabils. Í kjölfar þess og afskráningar Skipta
voru útistandandi hlutir innkallaðir og er nú Skipti 100% í eigu Exista. 
Nokkur óvissa ríkir um stöðu efnahagsmála á næstunni. Eftirspurn hefur minnkað
og búast má við að sú þróun haldi áfram. Skipti hf. og dótturfélög hafa
brugðist við þeim aðstæðum með ýmsum aðgerðum sem allar miða að því ná fram enn
betri rekstri félaganna. Á árinu 2008 var gripið til viðamikilla aðgerða í
rekstri félagsins. Þessar aðgerðir, sem allar miða að því að búa félagið undir
þá óvissu tíma sem framundan eru, hafa þegar skilað sér með lækkun kostnaðar og
enn skýrari stefnu fram á veginn. 

Nánari upplýsingar um samstæðuuppgjörið veita:

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri, sími 550-6003.
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, sími 863-6075.


Um Skipti hf.
Skipti hf. er eignarhaldsfélag um rekstur fyrirtækja á sviði fjarskipta,
upplýsingatækni og afþreyingar. Innan samstæðunnar eru meðal annars Síminn,
Míla, Já, Skjárinn, Sensa, Tæknivörur, On-Waves,Radiomiðun og Staki. Erlend
dótturfélög eru fjarskiptafélögin Aerofone í Bretlandi og Síminn Danmark  í
Danmörku, og upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Noregi,
í Svíþjóð og Danmörku.

Anhänge

skipti 31 12 2008.pdf lykiltolur.xlsx
GlobeNewswire