- Eftirlit með gjaldeyrisreglum styrkt


18. september 2009

Eftirlit með gjaldeyrisreglum styrkt 
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að endurskipuleggja og efla starfsemi
gjaldeyriseftirlits innan bankans. Markmiðið með þeim breytingum er að styrkja
eftirlit með gildandi gjaldeyrishöftum. Gjaldeyriseftirlitið verður hér eftir
sjálfstæð eining innan Seðlabankans og heyrir beint undir seðlabankastjóra.
Yfirmaður gjaldeyriseftirlitsins verður Ingibjörg Guðbjartsdóttir lögfræðingur,
en með henni verða a.m.k. þrír aðrir starfsmenn í eftirlitinu, auk þess sem það
mun njóta stuðnings sérfræðinga á öðrum sviðum Seðlabankans. 
Sérstök ráðgjafarnefnd verður gjaldeyriseftirlitinu til stuðnings. Hún verður
skipuð aðstoðarseðlabankastjóra, aðallögfræðingi bankans og fjórum öðrum
sérfræðingum eða yfirmönnum í bankanum. Ráðgjafarnefndin mun hafa eftirlit með
störfum gjaldeyriseftirlitsins, stuðla að virku samstarfi þess og annarra sviða
innan Seðlabankans og sinna stefnumótun, m.a. varðandi afnám gjaldeyrishafta,
eftirlit og framfylgd reglna. 
Mikilvægur þáttur í eflingu gjaldeyriseftirlitsins er að bæta upplýsingaöflun
Seðlabankans, bæði frá fjármálafyrirtækjum og öðrum aðilum. Þá verður samstarf
við opinbera aðila aukið. Bankinn vinnur nú þegar náið með Fjármálaeftirlitinu
að rannsókn brota á gjaldeyrislögum og reglum settum á grundvelli þeirra. Að
undanförnu hefur fjöldi mála verið til skoðunar hjá Seðlabanka Íslands og
nokkrir tugir mála eru nú í rannsókn. 
Endurskipulagning gjaldeyriseftirlitsins sem hér er kynnt breytir í engu þeirri
áætlun um afnám gjaldeyrishafta sem var kynnt 5. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt
henni er áformað að stíga fyrstu skrefin í þeim efnum eigi síðar en 1. nóvember
næstkomandi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Mikilvægur þáttur áætlunarinnar
er að efla eftirlit með þeim höftum sem eftir verða og framfylgja þeim af meiri
krafti. 

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Guðbjartsdóttir, forstöðumaður
gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands í síma 569 9600. 
 
Nr. 30/2009
18. september 2009

Anhänge

eftirlit me gjaldeyrisreglum styrkt.pdf
GlobeNewswire