Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 9%. Hámarksfjárhæð í vikulegum útboðum innstæðubréfa til 28 daga verður aukin úr 25 ma.kr. í 30 ma.kr., með 9,5% lágmarksvöxtum og 10,25% hámarksvöxtum. Í því felst 0,25 prósenta hækkun hámarksvaxta. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga verða lækkaðir úr 12% í 11% og daglánavextir úr 14,5% í 13%.
- Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar
| Quelle: Seðlabanki Íslands