Niðurstaða úr skuldabréfaútboði í flokki RVK 09 1


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokki RVK 09 1 þann 23.febrúar 2011. Ákveðin var fyrirfram að hafna öllum tilboðum á hærri ávöxtunarkröfu en 3,75% og fór útboðið fram með "hollensku" fyrirkomulagi þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið.
   
Alls bárust tilboð að nafnvirði ISK 300.000.000 og var þeim öllum tekið á ávöxtunarkröfu 3,75%. Stækkun flokksins nemur nú ISK 300.000.000.
 
Stærð flokksins fyrir útboð var ISK 9.330.000.000.
 
Heildarstærð flokksins er nú ISK 9.630.000.000.
 
Heimilt er að stækka flokkinn alls um ISK 6.300.000.000 á árinu 2011 en á árinu hefur flokkurinn verið stækkaður um ISK 300.000.000.

GlobeNewswire