Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Lánasjóðs sveitarfélaga


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 24. apríl 2012. 

Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 120.000.000 á bilinu 2,75% - 2,80%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 100.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,75%. Útistandandi fyrir voru ISK 28.344.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 28.444.000.000.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.860.000.000 á bilinu 3,20% - 3,70%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 480.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Útistandandi fyrir voru ISK 675.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 1.155.000.000.

Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, Sími: 515 4947, e-mail: egill@lanasjodur.is

GlobeNewswire