Marel hf. - Reikningsskil

Uppgjör 3. ársfjórðungs 2012 - kynningarfundur 25. október 2012


Marel hf. boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem kynnt verður uppgjör félagsins fyrir þriðja ársfjórðung árið 2012.

Theo Hoen, forstjóri, Erik Kaman, fjármálastjóri, og Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðarforstjóri, munu kynna uppgjörið.

Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 25. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ.

Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast

Morgunverður frá kl. 8:00.

GlobeNewswire