Boðað er til hluthafafundar hjá RARIK ohf. miðvikudaginn 19. desember n.k. kl. 13:00 á skrifstofu RARIK, Bíldshöfða 9 ,Rvk.
Hluthafinn í RARIK ohf. hefur samþykkt styttingu á boðunartíma hluthafafundarins.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Tillaga um hækkun hlutafjár með yfirfærslu af yfirverðsreikningi, sem nemur sömu fjárhæð og ójafnað eigið fé
- Tillaga um lækkun hlutafjár um sömu fjárhæð til jöfnunar á tapi
Fundarboð þetta er sent til fjármálaráðuneytisins, stjórnarmanna RARIK, forstjóra RARIK og Ríkisendurskoðunar.
Óskað er eftir að staðfesting sé send um móttöku á þessu fundarboði.
Fyrir hönd stjórnar
Árni Steinar Jóhannsson
Stjórnarformaður