Viðskiptayfirlit liðins árs, 2012 - NASDAQ OMX Iceland


Reykjavík, 31. desember, 2012 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Hér koma helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir árið 2012: 

Hlutabréf:

  • Heildarviðskipti með hlutabréf á árinu námu 89 milljörðum eða 356 milljónum á dag.  Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf árið 2011 69 milljarðar eða 272 milljónir á dag.
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel 27,4 milljarðar, Icelandair Group 26,3 milljarðar og Haga 20,5 milljarðar.  Á Aðalmarkaði hækkaði verð bréfa Icelandair Group mest eða um 63% á árinu og næst verð bréfa Haga um 39%.  Á First North markaðnum hækkaði verð bréfa Hampiðjunnar mest eða 124%.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 16,8% á árinu og stendur nú í 1059 stigum.  Af atvinnugreinavísitölum hækkaði vísitala neytendaþjónustu (IX5000PI) mest eða 51,8%.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 30,4%,  Íslandsbanki með 26% og Arion Banki með 15%.
  • Markaðsvirði skráðra hlutabréfa var í árslok 398 milljarðar og voru skráð félög 15, þar af 4 á First North. Á árinu 2012 voru 3 hlutabréf nýskráð, hvers markaðsvirði í lok árs var 71 milljarður.

Skuldabréf:

  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 2.324 milljörðum á árinu sem samsvarar 9,3 milljarða veltu á dag, samanborið við 10,3 milljarða veltu á dag árið 2011.  Alls námu viðskipti með ríkisbréf 1.641 milljarði en viðskipti með íbúðarbréf námu 627 milljörðum. 
  • Á árinu hækkuðu allar skuldabréfavísitölur Kauphallarinnar. Mest hækkaði 10 ára verðtryggða vísitalan, eða um 8,1%  og næst mest 5 ára óverðtryggða vísitalan, eða um 6,8%.
  • Á árinu var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 23,4%, MP Banki næst með 22,8% og Íslandsbanki með 19,7%.
  • Í lok árs voru skráð skuldabréf samtals 146, hvers markaðsvirði var 1.866 milljarðar. Á árinu voru nýskráð 15 skuldabréf og 12 víxlar. Samtals útgáfa (nýskráningar og stækkanir) skuldabréfa voru að nafnvirði 296 milljarðar. 

Magnús Harðarson, yfirmaður viðskiptasviðs NASDAQ OMX Iceland sagði: „Líðandi ár hefur einkennst af auknum krafti í uppbyggingu hlutabréfamarkaðarins. Góður stígandi hefur verið í hlutabréfaviðskiptum á árinu og fjárfestar hafa tekið nýjum fjárfestingarkostum vel. Hvað varðar fjölda nýskráninga megum við vel við una hér á Íslandi, en af átta nýskráningum í ár í kauphöllum NASDAQ OMX á Norðurlöndum voru þrjár hér. Þar af var skráning Eimskips sú stærsta að markaðsvirði. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu hlutabréfamarkaðarins á nýju ári, en miðað við áætlanir þá er von á fleiri nýskráningum árið 2013 en á liðnu ári. Við vonum sannarlega að þær áætlanir gangi eftir atvinnu- og efnahagslífi til hagsbóta.“

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/ 

Um NASDAQ OMX

NASDAQ OMX Group, Inc. setti á fót fyrstu rafrænu kauphöllina og hefur ætíð verið frumkvöðull á sviði rafrænna viðskipta. Fyrirtækið eflir efnahagslíf með framsæknum tæknilausnum sem spanna allan viðskiptaferilinn – allt frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Um 3.400 fyrirtæki með heildarmarkaðsvirði í kringum 5,100 milljarða Bandaríkjadala eru skráð á NASDAQ OMX. Nýsköpun þessara fyrirtækja mótar samfélagið sem við búum í – þannig veitum við hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni)

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

- # -

         NASDAQ OMX tengiliður:
         Kristín Jóhanns
         kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
         525 2844/868 9836


Anhänge

2012_1231_viðskiptayfirlit 2012_ftlk.pdf
GlobeNewswire