Fjarskipti hf. gera samning um gagnaflutningsþjónustu við Farice


Fjarskipti hf. hafa gert samning um kaup á gagnaflutningsþjónustu af Farice til þriggja ára. Samhliða hafa félögin náð samkomulagi um þau ágreinings- og dómsmál sem uppi voru milli félaganna vegna fyrri samnings og fjallað var um í lýsingu Fjarskipta, dags. 19. nóvember 2012, og viðauka við lýsinguna sem birtur var 29. nóvember 2012. Áhrif samkomulagsins um endanlegt uppgjör á fyrri samningi eru óveruleg á uppgjör ársins 2012.
GlobeNewswire