Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 30. apríl 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 3. maí 2013.
Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.
Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 57.500.000. Lánasjóðurinn selur ISK 57.500.000 af eigin bréfum sjóðsins. Selt magn í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 1.006.500.000 á ávöxtunarkröfunni 3,20%. Útistandandi fyrir voru ISK 2.425.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 3.374.000.000.
Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is